Tónlistarsjóður veitir 19 verkefnum ferðastyrki í febrúar - næsti umsóknarfrestur er 1. apríl

23 February 2026

Ferðastyrkir eru styrkir til tónlistarfólks og fagaðila sem vilja sækja sér tækifæri á stærri mörkuðum, t.d. með tónleikaferðalögum, þátttöku í sendinefndum, sölusýningum og fagtónlistarhátíðum (e. showcase). Einnig eru veittir styrkir til tónskálda vegna frumflutnings á tónverkum sem og fagaðila vegna starfstengdra ferða, t.d. til að sækja ráðstefnur og tengslamyndunarviðburði.

Styrkirnir eru veittir á tveggja mánaða fresti og rann síðasti umsóknarfrestur út þann 1. febrúar. Í heildina sóttu 39 verkefni um og ákvað úthlutunarnefnd að veita 19 verkefnum alls 4.725.000 kr.

Næsti umsóknarfrestur er 1. apríl 2026.

Verkefni sem hlutu ferðastyrk í febrúar úthlutun:

  • ADHD – Tónleikaferðalag um Kanada: 500,000
  • Amor Vincit Omnia – SXSW og The New Colussus Festival: 200,000
  • Björn Steinar Sólbergsson – Orgelhátíðir í Frakklandi og Sviss: 75,000
  • Cantoque Ensemble – Tónleikar á Estonian Music Days: 600,000
  • Cyber – Tónleikaferðalag um Evrópu: 225,000
  • Eydís Evensen – Tónleikar í Englandi: 75,000
  • ex.girls – Tónleikaferðalag um Noreg: 300,000
  • Inspector Spacetime – Tónleikaferðalag um Danmörku: 375,000
  • Jófríður Ákadóttir – Tónleikaferðalag um Evrópu: 150,000
  • Mighty Bear – Tónleikaferðalag um Belgíu: 75,000
  • Morpholith – Tónleikaferðalag um Pólland: 375,000
  • Pétur Oddbergur Heimisson – Þátttaka á Jazzahead: 75,000
  • Rakel Sigurdardottir – Upphitun á 8 tónleikum OMAM um Evrópu: 150,000
  • Rakel Sigurdardottir – SXSW: 200,000
  • Stefan Sand – Frumflutningur á tónverki í Osló: 75,000
  • Sunna Margrét Þórisdóttir – Tónleikar í Englandi: 225,000
  • Third Sound – Tónleikaferð um Ástralíu: 300,000
  • Voces Thules – St. Magnus Festival á Orkneyjum: 375,000
  • VÆB – Tónleikaferðalag um Evrópu: 375,000

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar