.jpg)
Íslensk kvikmyndatónlist var í fókus á Nordic Film Music Days 2026 sem fór fram í Berlín síðustu helgi (12.-15. febrúar). Þar var fjöldinn allur af íslenskum tónskáldum og tónlistarfólki samankomið til að taka þátt í þessari virtu hátíð sem bauð meðal annars upp á vinnustofur, málstofur og tengslamyndunarviðburi ásamt því að HARPA verðlaunin voru veitt.
Tónskáldin Viktor Orri Árnason og Álfheiður Erla Guðmundsdóttir voru tilnefnd til Norrænu kvikmyndatónlistaverðlaunanna HARPA fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Poems: A Journey Through Icelandic Poetry.
HARPA verðlaunin beina sjónum sínum að tónskáldum frá Norðurlöndum en valnefndir frá Íslandi, Noregi, Damörku, Finnlandi og Svíþjóð tilnefna á ári hverju eitt tónskáld til verðlaunanna. Verðlaunin voru veitt á laugardaginn 14. febrúar og hlaut finnska tónskáldið Panu Aaltio þau fyrir tónlist sína í svartkómedíunni Little Siberia.
Poems: A Journey Through Icelandic Poetry varr sýnd sunnudaginn 15. febrúar og í kjölfarið buðu Viktor Orri og Álfheiður upp á tónskáldaspjall sem Signý Leifsdóttir, sérfræðingur hjá Tónlistarmiðstöð leiddi.
Í nóvember síðastliðnum kallaði Tónlistarmiðstöð eftir umsóknum um þátttöku í hátíðinni. Tónskáldin Einar Sv. Tryggvason, Salka Valsdóttir og Gísli Galdur Þorgeirsson urðu fyrir valinu og voru þau því vera viðstödd veisluna og tóku þátt í fagaðiladagskrá hátíðarinnar. Auk þeirra var tónskáldið Hallur Ingólfsson einnig með í för.
Meira um Nordic Film Music Days: Heimasíða hátíðarinnar
Ljósmyndari: Thomas Kolbein Bjork Olsen







.jpg)
.jpg)
.avif)