
Norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunin HARPA hafa opnað fyrir innsendingar fyrir árið 2027. Um er að ræða árlega viðurkenningu sem veitt er á Nordic Film Music Days í Berlín í febrúar. Þar er eitt verk frá hverju Norðurlandi tilnefnd og verður verðlaunahafinn tilkynntur við hátíðlega athöfn í Norræna sendiráðinu í Berlín (Nordische Botschaften) laugardaginn 13. febrúar.
Tilnefnd tónskáld fá boð á Nordic Film Music Days í Berlín, þar sem þeim býðst tækifæri til að kynna verkefni sín, sýna myndirnar og styrkja tengsl sín við alþjóðlega kvikmyndatónlistargeirann.
Íslensk tónskáld hafa fimm sinnum tekið á móti Hörpunni en síðast var það Eðvarð Egilsson árið 2024.
Innsendingarfrestur er til og með 1. september.

