
Háskólinn á Bifröst og Listaháskóli Íslands bjóða upp á 12 ECTS eininga örnámslínu í tónlistarviðskiptum. Um er að ræða spennandi möguleika til símenntunar fyrir þá sem starfa í tónlistargeiranum. Örnámið er einnig einingarbært og getur nýst upp í háskólanám á grunnstigi.
Námskeiðið sameinar fræðilega innsýn og hagnýta þekkingu. Þátttakendur fá aðgang að þekkingu og alþjóðlegu tengslaneti sem hjálpar þeim að aðlagast og vaxa í ört breytilegum heimi. Auk þess munu nemendur búa yfir góðri verkfærakistu sem þeir geta tileinkað sér í námi og starfi. Kennslan nær til þeirra þátta sem taka við þegar sköpunarferlinu lýkur: dreifingar, markaðssetningar, útgáfustjórnunar, menningarstefnu, fjármögnunar, áhorfendaþróunar og stafrænnar stefnumótunar.
Þessi námskeið gefa góða innsýn fyrir listamenn sem vilja gefa út sjálfir og eins þá sem vilja vinna með listamönnum, stýra verkefnum, leiða markaðs- eða útgáfustarf, eða skilja betur viðskipta- og rekstrarhlið tónlistar.
Umsóknarfrestur: 1. desember 2026
