Tilraunatónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram dagana 3-7 september en þetta er 16. árið sem hátíðin er haldin. Líkt og fyrri ár er von á ótrúlegasta listafólki sem spannar allt frá dúrdrungopoppi (e. hypnagogic pop) til tilraunkenndrar umhverfistónlistar (e. ambient) og óhljóðalistar (e. noise)
Meðal listafólks sem kemur fram má meðal annars nefna nefna lo-fi brautryðjandann John Maus og kaskadíska myrkralistamanninn Loscil, rafpopp hljómsveitina Xiupill, hljóðlistakonuna Þórunni Björnsdóttur, þeremíngúrúinn Heklu, tilraunatvíeykið R-O-R - sem samanstendur af listafólkinu Gyðu Valtýsdóttur og Úlfi Hanssyni - og svo mætti lengi telja.
Hátíðin verður sett í Bíó Paradís þar sem minning Árna Grétars Jóhannessonar (Futuregrapher) verður heiðruð. Hátíðin mun svo eiga sér stað á nokkrum mismunandi stöðum í miðborginni: Gamla Bíó, Iðnó, Bíó Paradís, Húrra, Space Odyssey, ofl..
Extreme Chill er elsta tónlistarhátíð Íslands sem einblínir á tilraunatónlist og hljóðlist. Í grunninn snýst hátíðin um að skapa tengsl milli íslenskra og alþjóðlegra listamanna og sameina fjölbreyttar listgreinar, allt frá raftónlistar til myndlistar. Hátíðin hefur vakið töluverða athygli erlendis og fest sig í sessi sem mikilvægur hluti af íslensku tónlistarlífi.