Gabríel Ólafsson tilnefndur til Norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunanna

17 November 2026

Tónskáldið og píanóleikarinn Gabríel Ólafs hefur verið tilnefndur til Norrænu kvikmyndatónlistaverðlaunanna HARPA 2027 fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Prosecution (Staatsschutz) í leikstjórn Faraz Shariat. Myndin fjallar um ungan saksóknara, Seyo Kim, sem lifir naumlega af rasíska íkveikjuáras. Í kjölfarið sækir hún eigið mál fyrir dómstólum og tekst þar bæði á við árásarmen sína og réttarkerfi sem tekur ekki á öfgafullum hægrihópum. Myndin var frumsýnd í Panorama-flokki Berlinale-hátíðarinnar í febrúar 2026. Þar hlaut hún meðal annars áhorfendaverðlaun Panorama og Heiner Carow-verðlaunin.

Ummæli íslensku dómnefndarinnar:

Tónlist Gabríels Ólafs við Prosecution er áhrifamikill og órjúfanlegur hluti af dramatískri frásögn myndarinnar. Tónlistin er sparlega mótuð og beitt af mikilli næmni í samspili við hljóðheim og tónmynd verksins, þannig fær hver innkoma hennar aukið vægi. Tónlist og hljóðheimur renna saman í eina kvikmyndalega heild þar sem dökkur og tregafullur tónheimur dýpkar viðkvæm augnablik og magnar spennu og ógn þegar frásögnin krefst þess. 

Styrkur tónlistarinnar felst ekki síst í þessu jafnvægi: hún er aldrei of fyrirferðarmikil en hefur engu að síður sterka dramatíska nærveru og mótar heildartón myndarinnar. Oft eru langir kaflar án tónlistar og biðin eftir henni krefur fram hlustun á "tónlistina" í hversdeginum og hljóðin í raunveruleika verksins verða einnig að tónlist. 

Um Verðlaunin

Norrænu kvikmyndatónlistarverðlaunin HARPA, sem veitt eru af Nordic Film Music Days, beina sjónum sínum að framúrskarandi tónskáldum frá norðurlöndum en valnefndir frá Íslandi, Noregi, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð tilnefna á ári hverju eitt tónskáld til verðlaunanna. 

Íslensk kvikmyndatónlist hefur verið sigursæl á þessum vettvangi en fyrir þremur árum vann Eðvarð Egilsson HARPA verðlaunin fyrir tónlist sína í heimildamyndinni Smoke Sauna Sisterhood. Aðrir íslenskir handhafar verðlaunanna eru Davíð Þór Jónsson og Benedikt Erlingsson (2019, Kona fer í stríð), Daníel Bjarnason (2018, Undir trénu), Atli Örvarsson (2016, Hrútar) og Jóhann Jóhannsson sem hlaut heiðursverðlaun árið 2016.

Nordic Music Days hátíðin er haldin samhliða Berlinale kvikmyndahátíðinni og fer verðlaunaafhendingin fram þann 15. febrúar 2027 á Nordische Botschaften í Berlín.

Tilnefningar frá hinum Norðurlöndunum:

  • Danmörk: Christian Balvig fyrir Mors Drenge (leikstj. Jesper Dalgaard)
  • Finnland: Emil Sana fyrir Huutamisen taito (leikstj. Josefina Rautiainen)
  • Noregur: Lars Horntveth fyrir Ølhunden Berit (leikstj. Thomas Seeberg Torjussen)
  • Svíþjóð: Irya Gmeyner og Martin Hederos fyrir Jag for ner till bror (leikstj. Sanna Lenken)

‍

Við óskum Gabríel innilega til hamingju með þessa verðskulduðu tilnefningu! 

‍

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar