
Fyrr í mánuðinum fór árleg Bransaveisla Tónlistarmiðstöðvar og Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur fram í sjötta sinn. Markmið veislunnar er tvíþætt: að rýna í stöðu íslensks tónlistarsamfélags og að tengja erlenda fagaðila, sem koma til landsins vegna Iceland Airwaves-hátíðarinnar, beint við íslenskt tónlistarfólk.
Bransaveisla ársins var stærri í sniðum en nokkru sinni fyrr. Hún samanstóð af um 15 viðburðum út um allan bæ og fór aðsóknin fram úr björtustu vonum. Eiginlega bara sannkölluð veisla!
Við þökkum samstarfsaðilum og þátttakendum öllum fyrir framlag sitt og ekki síður þann mikla áhuga sem verkefninu var sýndur. Bransaveisla er orðin einn helsti fræðslu- og tengslamyndunarvettvangur íslensks tónlistarlífs. Við erum bæði meyr og stolt yfir því að fá þann heiður að halda hana árlega.
Áfram íslensk tónlist!
Eftir Sunnu Ben og Ingibjörgu Friðriksdóttur
Bransaveisla hófst á skipulagsfundi Feedback-verkefnisins sem haldinn var á skrifstofu Reykjavík Grapevine 2. nóvember. Feedback var haldið í annað sinn í ár, eftir vel heppnaða frumraun í fyrra. Verkefninu er ætlað að stuðla að nýliðun í menningarmiðlun og býður það skúffuskáldum og laumupennum tækifæri til að skrifa um Iceland Airwaves-hátíðina undir handleiðslu ritstjóra í fremstu röð.


Morguninn eftir færði Bransaveisla sig yfir í Grósku þar sem boðið var upp á viðburðinn „Að vita sínu viti“, sem haldinn var í samstarfi við Rannsóknasetur skapandi greina. Þar voru kynntar niðurstöður tveggja rannsókna sem Rannsóknasetrið vann fyrr á árinu í samstarfi við Tónlistarborgina og Tónlistarmiðstöð.




Í hádeginu var næturhagkerfið tekið fyrir og buðu .haus upp á veitingar og kynningu á evrópsku samstarfsverkefni sem þau eru aðilar að. Viðburðinum, sem fór fram í Mengi, var ætlað að koma af stað samtali milli hagsmunaaðila um mikilvægi þess að staðið verði vörð um næturvistkerfið. Það er margt sem myrkrið veit.



Emma Vikström, Norðurlandaritstjóri Spotify, hélt svo meistaranámskeið í sal Tónlistarmiðstöðvar. Þar kafaði hún ofan í helstu eiginleika Spotify for Artists og ræddi hvaða vinnubrögð listafólk ætti að tileinka sér til að auka líkurnar á að falla í kramið hjá algóriþmanum.


Þriðjudeginum lauk í Mengi á pallborði sem haldið var í samstarfi við Litlu Gróðurhúsa Familíu og bar nafnið „Relocate. Reshape.“ Þar var sjónum beint að nýjum Íslendingum og þeim áhrifum sem koma þeirra hefur á litla og oft lokaða senu. Viðburðurinn bauð upp á skemmtilegt og jafnvel örlítið óþægilegt spjall, tónlistaratriði og játningakassa.




Miðvikudagurinn 4. nóvember hófst á árlegu meistaranámskeiði í umboðsmennsku í samstarfi við MMF Iceland. Í ár var það Sumit Bothra, fyrrum framkvæmdastjóri ATC Management og stofnandi SB3 Management, sem leiddi námskeiðið. Aðsóknin var töluvert meiri en undanfarin ár, sem gefur til kynna að íslensk umboðsmennska sé að blómstra.


Næstur á dagskrá var tilraunaviðburðurinn „Já, nei, ekki strax“ þar sem skyggnst var á bak við tjöldin hjá bókurum margra af helstu faghátíðum Evrópu. Bókararnir fengu í hendurnar ímyndaðar umsóknir frá íslensku tónlistarfólki og þurftu að taka ákvörðun: já, nei eða ekki strax.




Hinir árlegu tengslamyndunarfundir tóku svo við á Bingó á Skólavörðustíg. Þeim lauk á því að Tónlistarmiðstöð, MMF Iceland og MMF UK tilkynntu nýtt samstarfsverkefni sem miðar að því að veita íslensku umboðsfólki alþjóðlega þjálfun og réttindi í gegnum fræðsluprógramm MMF UK. Nánari upplýsingar eru bara handan við hornið!






Á fimmtudeginum hófst ráðstefna Iceland Airwaves, en Tónlistarmiðstöð og Tónlistarborgin Reykjavík sáu um bókun og skipulagningu dagsins. Eftir ráðstefnudagskrána buðu samtök norrænna tónlistarskrifstofa, NOMEX, upp á móttöku til heiðurs Current-listafólkinu í sal Tónlistarmiðstöðvar. Þar spilaði Árný Margrét nokkur lög og dúettinn CYBER DJ-aði.









Á föstudagseftirmiðdeginum var haldið forleggjaraspjall í stofunni hjá INNI Music í samstarfi við IMPA. Þar komu saman Steve Tallamy, framkvæmdastjóri Wise Music á Norðurlöndum, og tónskáldið Biggi Hilmars og ræddu forleggjaralandslagið eins og það birtist ungu tónlistarfólki í dag.



Tónlistarmiðstöð og Tónlistarborgin Reykjavík þakka enn og aftur fyrir sig og við hlökkum til að endurtaka leikinn að ári!

