Tourbus Nordic: Kortlagning norræna tónlistarumhverfisins

04 June 2026

Art Music Denmark, Music Finland og Tónlistarmiðstöð kynna til leiks nýtt samstarfsverkefni sem ber heitið Tourbus Nordic. Verkefnið byggir á gagnagreiningu og er ætlað að kortleggja tónleikaferðalög og tengsl tónlistarfólks á Norðurlöndunum, með það að markmiði að dýpka skilning á ferli tónlistarfólks og ferðamynstri þeirra.

Tourbus Nordic byggir á árangursríku tilraunaverkefni í Danmörku og Svíþjóð árið 2025, og er það keyrt í samstarfi við sænsku tónlistargagnasérfræðingana Tourbus AB.

Hvað er Tourbus Nordic?

Markmið Tourbus Nordic er að skapa stafrænt kort af norræna tónlistarumhverfinu. Með því að greina gögn sem safnað er beint af vefsíðum listafólks og tónleikastaða veitir verkefnið nýja innsýn í hvernig ferill listafólks þróast, með hverjum þau starfa og hvernig þau ferðast á milli landa. Þannig er vonast til að verkefnið varpi nákvæmari mynd af norrænu tónlistarlífi sem mun nýtast okkur til að veita listafólki betri ráðgjöf, hanna skilvirkari styrkjakerfi og mæla árangur og áhrif til lengri tíma.

Raunveruleg verðmæti fyrir listafólk, tónleikastaði og bransann

Verkefninu er ætlað að skapa áþreifanlegan ávinning fyrir allan geirann:

  • Fyrir listafólk á tónleikaferðalagi og tónleikastaði: Verkefnið mun veita hagnýta innsýn sem hjálpar listafólki að skipuleggja tónleikaferðir erlendis á skilvirkari hátt og finna nýja áheyrendahópa. Þá mun það aðstoða tónleikastaði við að koma auga á upprennandi hæfileikafólk frá nágrannalöndunum.
  • Fyrir ráðgjafa og bakhjarla í greininni: Með því að teikna upp nákvæma mynd af norrænu tónlistarlífi geta samstarfsaðilar hannað markvissari styrkjaáætlanir, boðið upp á skarpari ráðgjöf og mælt með nákvæmari hætti langtímaárangur veitts stuðnings.

Við hlökkum til að segja nánar frá verkefninu á næstunni og sýna hvernig listafólk og tónleikastaðir geta byggt á þeirri innsýnin sem verkefnið veitir. 

Tourbus Nordic er samstarfsverkefni Art Music Denmark, Music Finland og Tónlistarmiðstöðvar. Verkefnið er rausnarlega styrkt af Norræna menningarsjóðnum (Nordisk Kulturfond).

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar