Tónlistarsjóður veitir 58 milljónum til 47 verkefna í seinni úthlutun 2026

01 July 2026

 Úthlutunarnefndir Tónlistarsjóðs hafa lokið vinnu vegna seinni úthlutunar 2026

Í sjóðinn bárust alls 431 umsókn og var heildarupphæð styrkumsókna 704.434.577 kr. Til úthlutunar voru 57.888.470 kr. sem veitt er til samtals 47 verkefna sem skiptast svo á milli fjögurra deilda sjóðsins.

Frumsköpun og útgáfa - tónlistarstyrkir

234 umsóknir sóttu um alls 324.782.323 kr. Alls er 20.850.000 kr. veitt til 22 verkefna. Hæstu verkefnastyrkinn eða 2 m.kr. fær tónlistarmaðurinn Bjarni Daníel Þorvaldsson. Þá hljóta Ellen Kristjánsdóttir og Þórður Magnússon 1,8 m.kr. í styrk hvort.

Árangurshlutfall umsókna er 9%. Af úthlutaðri upphæð renna:

  • 23% til verkefna í sígildri- og samtímatónlist
  • 45% til popp, rokk og indí
  • 13% til raftónlistar
  • Rest til annarra tónlistarstefna

Lifandi flutningur - flytjendastyrkir

98 umsóknir sóttu um alls 119.145.139 kr. Alls er 12.452.500 kr. úthlutað til 10 verkefna. Óperukompaníið HinÓperan hlýtur hæsta verkefnastyrkinn eða tæplega 2,7 m.kr. Moses Hightower hlýtur tæplega 2,2 m.kr. fyrir tónleikaferðalag um landið. Þá hlýtur kammertónlistarhópurinn Meltríó verkefnastyrk upp á rúmlega 1,8 m.kr. fyrir tónleika sem haldnir verða víða um land. 

Árangurshlutfall umsókna er 10%. Af úthlutaðri upphæð renna:

  • 68% úthlutaðrar upphæðar til verkefna í sígildri og samtímatónlist
  • 17% til popp, rokk og indí
  • Rest til annarra tónlistarstefna

Er það nokkuð í samræmi við hlutfall milli tónlistarstefna sem sóttu um.

Engir nýir langtímasamningar eru veittir í þessari úthlutun en eftirfarandi verkefni eru með langtímasamninga í gildi 2026: 

  • Caput - 6 m.kr. á ári (2024-2026)
  • Kammersveit Reykjavíkur - 5 m.kr. á ári (2024-2026)
  • Elja Kammersveit - 3,5 m.kr. á ári (2026-2027)
  • Barrokbandið Brák - 2,5 m.kr. á ári (2026-2027)
  • Kammerkórinn Cantoque - 3 m.kr á ári (2025-2027)

Þróun og innviðir - viðskiptastyrkir

Alls bárust 79 umsóknir um samtals 227.792.743 kr.
Til úthlutunar eru kr. 18.220.000 sem úthlutað er til 9 verkefna.

Hæstu verkefnastyrki, 3 m.kr., hljóta Myrkir músíkdagar og VAKA Þjóðlistahátíð. Þá hlýtur  tónlistarhátíðin Sátan 2,5 m.kr. í styrk 

Heildarárangurshlutfall umsókna er 11%. Af úthlutaðri upphæð renna:

  • 40% til verkefna sem vinna þvert á tónlistarstefnu
  • 29% til sígildrar og samtímatónlistar
  • 16% til djass og blús
  • Rest til annarra tónlistarstefna

Engir nýir langtímasamningar voru veittir í þessari úthlutun en eftirfarandi verkefni eru með langtímasamninga í gildi 2026: 

  • Óperudagar - 4 m.kr. (2024-2026)
  • Sönghátíð í Hafnarborg - 2 m.kr. (2024-2026)
  • Reykholtshátíð - 1 m.kr. (2024-2026)
  • Bræðslan - 1,5 m.kr. (2024-2026)
  • Iceland Airwaves - 6 m.kr. (2024-2026)
  • Aldrei fór ég suður - 3 m.kr. (2026-2027)
  • Jazzhátíð í Reykjavík - 4 m.kr. (2026-2028)
  • Seigla - 2 m.kr. (2026-2027)

Útflutningur - markaðsstyrkir

22 umsóknir sóttu um 32.714.372 kr. Úthlutað er 6.365.970 kr. til 6 verkefna. Hæsta styrkinn hlýtur Bedroom Community upp á 2 m.kr. 

Árangurshlutfall umsókna er 27%. Af úthlutaðri upphæð renna:

  • 47% til sígildrar og samtímatónlistar
  • 31% til verkefna í popp, rokk og indí
  • Rest til annarra tónlistarstefna

Skipting veittra styrkja út frá kyni, landshlutum og tegund umsækjanda

Flestar umsóknir bárust frá verkefnum þar sem forsvarsmaður umsóknar var karl, eða 57% og 43% umsókna voru frá konum. Árangurshlutfall umsókna var 9% hjá körlum og 9% hjá konum. 

Flestir styrkir Tónlistarsjóðs að þessu sinni eru veittir til einstaklinga eða 54%, 23% fara til fyrirtækja og aðrir styrkir til félagasamtaka, stofnanna og annarra umsækjenda. 

Heildar árangurshlutfall umsókna er 11%. Alls 76% af veittri upphæð fara til verkefna á höfuðborgarsvæðinu, 15% til verkefna annars staðar á landinu og 9% til verkefna sem fara fram erlendis. 

Úthlutunarnefndir

Nefndirnar voru skipaðar eftirfarandi aðilum en tveir aðilar eru skipaðir af fagfélögum í tónlist og einn af ráðherra sem jafnframt er formaður:

Tónlistarstyrkir - Deild frumsköpunar og útgáfu: 

Sindri Ástmarsson, formaður 
Hafdís Bjarnadóttir 
Kristjana Stefánsdóttir 

Flytjendastyrkir - Deild lifandi flutnings: 

Inga Magnes Weisshappel, formaður
Þorbjörg Daphne Hall 
Kristján Kristjánsson

Viðskiptastyrkir - Deild innviða og þróunar: 

Tómas Young, formaður 
Brynja Guðmundsdóttir
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir

Markaðsstyrkir - Deild útflutnings 

Snæbjörn Ragnarsson, formaður 
Anna Jóna Dungal
Melkorka Ólafsdóttir 

Listi yfir allar styrkveitingar

Tónlistarstyrkir

  • Bjarni Daníel Þorvaldsson – Bjarni Daníel, fyrstu sólóplötur: DÍSEL 1 & DÍSEL 2 – 2.000.000 kr
  • Þórður Magnússon – Upptaka á Konsert fyrir fiðlu og hljómsveit – 1.800.000 kr
  • Ellen Rósalind Kristjánsdóttir – Ellen Kristjánsdóttir og Dominic Miller – 1.800.000 kr
  • Blómi sf – Tónsmíðar og útsetningar ásamt upptöku og útgáfu á tíundu hljómplötu ADHD – 1.500.000 kr
  • Sigurður Björn Blöndal – HAMPARAT - tónleikaplata – 1.000.000 kr
  • RVK Record Shop ehf. – lúpína - Light in the Dark (ep) – 1.000.000 kr
  • Jón Arnar Einarsson – Ákall! – 1.000.000 kr
  • Stjörnusambandsstöðin ehf. – Jól á Diskóeyju - Memfismafían – 1.000.000 kr
  • Guðjón Daði Grétuson Lulof – BESTI RAPPARI ÍSLANDS – 1.000.000 kr
  • Plastkastalinn ehf. – K.óla - hljómplata í fullri lengd – 1.000.000 kr
  • Birkir Kárason – Static Spiral Swells – 800.000 kr
  • Björk Níelsdóttir – Ferðaflóra – 800.000 kr
  • Sigmar Þór Matthíasson – Heimstónlistarjazz þríleikur – 800.000 kr
  • María Magnúsdóttir – Upptökur á barnaplötunni Allt í góðu lagi – 750.000 kr
  • Elísabet Eyþórsdóttir – STILL – 700.000 kr
  • Eygló Höskuldsdóttir Viborg – CYCLE – 600.000 kr
  • Sólrún Mjöll Kjartansdóttir – Attached/detached EP – 600.000 kr
  • Rubin Pollock – Trés Locos – 600.000 kr
  • Jón Knútur Ásmundsson – Upptökur á nýrri plötu Coney Island Babies – 600.000 kr
  • Sigurður Hjörtur Flosason – Sigurður Flosason, Daniel Nolgård og Stórsveit Reykjavíkur – 500.000 kr
  • Birgir Hilmarsson – Reflections: Vol. I Piano – 500.000 kr
  • RVH slf. – Tuttugu og eitthvað lög - stúdíó útgáfur – 500.000 kr

Flytjendastyrkir

  • Íris Björk Gunnarsdóttir – 27 – 2.671.100 kr
  • Mahoney ehf. – Moses er víða – 2.150.000 kr
  • Chrissie Telma Guðmundsdóttir – Meltríó – 1.826.900 kr
  • Mt. Eliassen slf. – Handan tímans: Spuni í návist Einars Jónssonar – 1.340.000 kr
  • Eyjólfur Eyjólfsson – SYRINX – 1.070.000 kr
  • Anna Elísabet Sigurðardóttir – Ævintýrið um Dimmalimm, barnatónleikar fyrir píanókvartett og söngkonu – 976.300 kr
  • Högni Egilsson – ANOK – 890.000 kr
  • Stefan Sand – NAVARANAAQ – 574.200 kr
  • Gunnar Kristinn Óskarsson – Endurómur Norðursins – 504.000 kr
  • Hildigunnur Einarsdóttir – Portrait - Kurt Weill – 450.000 kr

Markaðsstyrkir

  • Valgeir Sigurðsson ehf – Bedroom Community 20 ára – 2.000.000 kr
  • Axel Flóvent Daðason – Fleeing The Shore EP and Tour - Digital and Touring Marketing – 1.000.000 kr
  • Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir – When the Iceheart Beats - plötuútgáfa – 1.000.000 kr
  • Iceland Sync Management ehf. – Bríet í Bandaríkjunum – 1.000.000 kr
  • Salka Valsdóttir – Markaðsherferð fyrstu tveggja singúla SCAM – 801.000 kr
  • Jose Luis A Anderson Esquivel – Ironclad and Palm trees - Mexico PR campaign – 564.970 kr

Þróun og innviðir

  • Tónskáldafélag Íslands – Myrkir músíkdagar – 3.000.000 kr
  • Vökufélagið - Félag Þjóðlistafólks – VAKA þjóðlistahátíð – 3.000.000 kr
  • Glapræði ehf. – Tónlistarhátíðin Sátan – 2.500.000 kr
  • State of the Art slf. – State of the Art 2026 – 2.300.000 kr
  • INNI Music ehf. – LEIÐIR Composer & Producer Programme – 2.000.000 kr
  • Bad taste Reykjavík ehf. – Smekkleysa 40 ára - Afmælishelgi í Austurbæ – 1.840.000 kr
  • MBS Skífur ehf. – Mannfólkið breytist í slím 2026 – 1.500.000 kr
  • Félag íslenskra kvenna í tónlist (FÍKT) – Kítónleikar í Iðnó – 1.080.000 kr
  • Tónræktin ehf. – SuðurlandsDjazz – 1.000.000 kr

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar