Tónlistarsjóður veitir 15 ferðastyrki í apríl - næsti umsóknarfrestur er 1. júní

29 April 2026

Ferðastyrkir eru veittir tónlistarfólk og fagaðilum sem hyggjast sækja sér tækifæri á alþjóðlegum mörkuðum, t.d. með tónleikaferðalögum, þátttöku í sendinefndum, sölusýningum og fagtónlistarhátíðum (e. showcase). Einnig eru veittir styrkir til tónskálda vegna frumflutnings á tónverkum sem og fagaðila vegna starfstengdra ferða, t.d. til að sækja ráðstefnur og tengslamyndunarviðburði.

Styrkirnir eru veittir á tveggja mánaða fresti og rann síðasti umsóknarfrestur út þann 1. apríl. Úthlutunarnefnd veittir 10 verkefnum alls 2.950.000 kr.

Næsti umsóknarfrestur er 1. júní 2026.

Verkefni sem hlutu ferðastyrk í apríl úthlutun:

  • Hekla Magnúsdóttir – Tónleikaferðalag um Evrópu – 75.000
  • Ragnheiður Gröndal – Tónleikar á Nordic Folk Allience – 150.000
  • Josie Anne B. Maltinsky Gaitens – Þátttaka á Nordic Folk Allience – 75.000
  • Ólöf Arnalds – Tónleikaferðalag um Evrópu – 150.000
  • Bríet – Upphitunartónleikar f. Ásgeir í Evrópu – 75.000
  • Kælan mikla – Tónleikaferðalag um Portúgal og Spán – 375.000
  • SCAM – Roskilde tónlistarhátíð – 300.000
  • múm – Tónleikaferðalag um Asíu – 600.000
  • Spacestation – The Great Escape tónlistarhátíð – 450.000
  • Andrés Thor trio – Tónleikaferð í Noregi – 75.000
  • Magma gítardúó – Gítarhátíðin Classical Guitar Retreat – 150.000
  • Bergrún Snæbjörnsdóttir – Frumflutningur á tónverki í New York – 100.000
  • Bjarni Daníel – Tónleikaferðalag um Evrópu – 150.000
  • Atli Freyr Hjaltason – Þátttaka á Nordic Folk Allience – 75.000
  • Elín Hall – Upphitunartónleikar f. Jamie Woon í Evrópu – 150.000

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar