.jpg)
Ferastyrkir Tónlistarsjóðs eru veittir á tveggja mánaða fresti. Hægt er að sækja um ferðastyrki vegna m.a. tónleika og tónleikaferða, þátttöku í sendinefndum, fagtónlistarhátíða og frumflutnings á tónverkum eftir tónskáld.
Ekki er gerð krafa um að umsækjendur komi fram á ákveðnum lágmarksfjölda tónleika heldur metur úthlutunarnefnd gildi og umfang hvers verkefnis í heild sinni og í samhengi við markmið sjóðsins.
Mest er hægt að sækja um ferðastyrki fyrir 8 manneskjur hverju sinni eða samtals 600.000 kr fyrir verkefni innan Evrópu og 800.000 kr. fyrir verkefni utan Evrópu.
Ekkert hámark er á fjölda ferðastyrkja sem umsækjendur geta fengið úthlutað yfir árstímabil.
Ekki er hægt að sækja um ferðastyrki vegna hljóðritunar erlendis.
Úthlutunarnefnd ferðastyrkja metur umsóknir út frá markmiðum deildarinnar og almennum matsviðmiðum Tónlistarsjóðs:
40% – Verkefnið: Úthlutunarnefnd metur hvort verkefnið sé vel skilgreint, áhugavert, unnið faglega og af metnaði.
20% – Umsækjandi og þátttakendur: Úthlutunarnefnd metur hve sannfærandi er að umsækjandi og þátttakendur nái settum markmiðum með tilliti til faglegs og listræns bakgrunns.
40% – Fjárhagsáætlun: Úthlutunarnefnd metur hvort fjárhagsáætlun sé raunsæ og sýni fram á fjárþörf verkefnisins með skýrum hætti.