Tónlistarmiðstöð á SXSW - Myndir

26 March 2026

Tónlistarmiðstöð lauk nýverið þátttöku sinni á SXSW hátíðinni í Austin, Texas. Þar héldum við utan um “showcase” tónleika á tónleikastaðnum Inn-Cahoots, í samstarfi við Íslandsstofu og Artists for Action, þar sem listafólkið RAKEL og Spacestation komu fram og spiluðu fyrir fullu húsi. 

Áður en tónleikarnir hófust var haldin fagaðila og fjölmiðlamótttaka á saman stað, þar sem Record in Iceland og Film in Iceland endurgreiðslukerfin voru kynnt fyrir áhugasömum. Meðal markmiða endurgreiðslukerfanna er einmitt að auglýsa Ísland sem ákjósanlegan áfangastað fyrir tónlistar- og kvikmyndaverkefni og því gríðarlegt tækifæri að fá að kynna þau á eins virtum og vinsælum viðburði eins og SXSW.

Við þökkum listafólkinu og samstarfsaðilum okkar fyrir vel heppnaða ferð! 

Myndir

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar