
Dagana 7.–9. ágúst fer tónlistarhátíðin Seigla fram í sjötta sinn í Hörpu. Hátíðin hefur frá upphafi leitast við að skapa vettvang þar sem framúrskarandi tónlistarfólk og áheyrendur mætast á persónulegan hátt. Seigla byggir á forvitni, nánd og samtali og leggur áherslu á að skapa tónlistarupplifanir þar sem rými gefst til að hlusta, ræða og tengjast.
Þema hátíðarinnar í ár er fléttan, en hugmyndin kviknaði í samstarfi við Elju kammersveit. Seigla býður flytjendum og áheyrendum að nálgast þemað frá ólíkum sjónarhornum og velta fyrir sér hvernig þræðir tónlistar, texta, rýmis og mannlegra samskipta geta orðið að skemmtilegri heild.
Meginviðburðir hátíðarinnar fara fram í Norðurljósum og Hörpuhorni. Meðal flytjenda er Elja kammersveit, sem kemur fram bæði á laugardags- og sunnudagskvöld — annars vegar á tónleikum um ævi og verk Julius Eastman og hins vegar þar sem dægurlagatónlist fær nýtt líf í óvæntum útsetningum. Hátíðin býður einnig danska kammerkórnum Det Unge VokalEnsemble velkomnum, en hann syngur bæði íslenska og danska tónlist og frumflytur verkið Phaethon eftir Veroniku Voetmann. Á dagskránni má sömuleiðis finna opnunartónleika um vætti og þjóðsögur, dagskrá tileinkaða mæðrum, ný verk innblásin af þjóðgörðum og tónleika fyrir selló og píanó sem kanna samband tíma og rýmis.
Í ár bætist einnigvið ný dagskrá undir heitinu Litla Seigla: röð viðburða sem fer fram samhliða almennri dagskrá hátíðarinnar. Um er að ræða ókeypis fjölskyldudagskrá sem einblínir á leik og þátttöku.
Nánari upplýsingar um dagskrá og miða má nálgast á vefsíðu hátíðarinnar