OPIÐ KALL: Current - Nordic Festival Talent Exchange

20 May 2026

Opið kall: Current– Nordic Festival Talent Exchange er nýtt samstarfsverkefni á milli Tónlistarmiðstöðvar, Iceland Airwaves, Music Norway, by:Larm, Music Export Denmark og SPOT Festival.

Verkefninu er ætlað að auka tækifæri listafólks á Norðurlöndum og dýpka samstarf þeirra sem móta dagskrár hátíðanna. Tónlistarmiðstöðvar landanna, í samstarfi við hátíðirnar, velja 2 listamenn eða hljómsveitir frá hverju þátttökulandi og verður þeim boðið að koma fram á eftirfarandi hátíðum: 

  • by:Larm (Noregi) — september 2026
  • Iceland Airwaves (Íslandi) — nóvember 2026
  • SPOT Festival (Danmörku) — maí 2027

Þátttakendur fá ferðastyrk og þóknun fyrir framkomu

Hverjir geta sótt um?

Umsækjendur verða að uppfylla öll eftirfarandi skilyrði til þess að koma til greina. Listafólk þarf að:

  • Hafa bækistöðvar í einu af þátttökulöndunum
  • Búa yfir reynslu af því að koma fram opinberlega
  • Hafa gefið út tónlist á opinberum vettvangi
  • Starfa með fagaðila innan tónlistariðnaðarins (umboðsmanni, bókunaraðila, útgáfu, kynningarstjóra o.s.frv.)
  • Vera á þeim stað ferilsins þar sem alþjóðleg kynning (showcase) er rökrétt framhald

Hvað felst í þátttökunni?

Þátttakendur muna:

  • Koma fram á öllum þremur samstarfshátíðunum
  • Hljóta ferðastyrk og greiðslu fyrir framkomu
  • Fá dýrmæta kynningu gagnvart norrænum og alþjóðlegum fagaðilum í tónlistariðnaðinum
  • Taka þátt í tengslamyndun og faglegum viðburðum samhliða hátíðunum

Umsóknarfrestur

Frestur til að skila inn umsóknum er til 2. júní kl. 23:59 (GMT).

Sækið um hér

Um verkefnið

Current er tilraunaverkefni sem miðar að því að styrkja norrænt samstarf á sviði tónleika- og kynningarhátíða. Markmiðið er að móta sjálfbær og gagnsæ líkön fyrir skipti á listamönnum, og styðja um leið við listrænan vöxt og alþjóðleg tækifæri á Norðurlöndunum öllum. 

Verkefnið er styrkt af Norræna menningarsjóðnum.

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar