Með allt á hreinu: Tekjur í tónlist

22 April 2026

Þriðjudaginn 28. Apríl býður Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við MMFIceland tónlistarfólki, fagaðilum og öðrum sem starfa við tónlist í síðdegisspjall um tekjuleiðir í tónlist. Þar mun miðstöðin kynna handbók sem varpar ljósi á það vistkerfi sem tónlistarfólk starfar í og miðar að því að greiða aðeins úr frumskóginum. 

Í kjölfar kynningarinnar fáum við góða gesti í heimsókn til að ræða sína ferla og hvernig sköpunargleðin getur orðið sjálfbær.

Í pallborði eru:

  • Bragi Valdimar Skúlason, texta- og hugmyndasmiður
  • Vigdís Hafliðadóttir, söngkona, leikkona og grínisti
  • Árni Þór Árnason, umboðsmaður og stjórnarformaður MMF Iceland

Viðburðurinn er auðvitað ókeypis og öllum opinn, en skráning er nauðsynleg og fer fram hér

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar