KALEO tekur við stjórninni á Iceland Music Indie

19 June 2026

Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að sólstöðuhátíðin BERGMÁL fer fram um helgina, þann 20. júní, á Þingvöllum. Þar stígur hljómsveitin KALEO á svið ásamt úrvali af íslensku listafólki; Emilíönu Torrini, Mugison, Stuðmönnum, Helga Björns, Hjálmum, GDRN, Júníusi Meyvant, KK, Árnýju Margréti og fleirum.

Í tilefni af sólstöðuveislunni á Þingvöllum buðum við KALEO að taka við stjórninni á Iceland Music Indie lagalistanum okkar. Listinn samanstendur af helsta samferðafólki meðlimanna síðastliðin ár, því ferskasta sem er að gerast í íslenska índí-heiminum og nokkrum vel völdum lögum sem undirstrika rætur hljómsveitarinnar.

KALEO hvetur okkur til að fara í útilegu og syngja hástöfum með góðum vinum. Listinn er því hinn fullkomni ferðafélagi inn í ævintýri sumarsin, hvort sem förinni er heitið á Þingvelli eða ekki. 

Hlustið á Iceland Music Indie hér:

Spotify:

Apple:

In celebration of their solstice festival, BERGMÁL, at Þingvellir National Park, KALEO takes the reins of Iceland Music Indie. The result is the ultimate soundtrack to the summer's adventures!
Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar