Eurosonic Noorderslag - umsóknarfrestur 1. september

18 August 2026

Nú fara hver að verða síðust til að sækja um að koma fram á Eurosonic Noorderslag (ESNS) 2027 en umsóknarfresturinn rennur út 1. september. Hátíðin er haldin ár hvert í Groningen, Hollandi og verður næsta haldin dagana 13-16 janúar 2027. ESNS er með sönnu ein af stærstu og mikilvægustu faghátíðum Evrópu og býður hún upp á yfir 350 tónleika frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og laðar að sér yfir 40.000 gesti, þarf af um 400 bókara frá alþjóðlegum tónlistarhátíðum.

Samhliða hátíðinni fer fram ráðstefna sem býður upp á vinnustofur, pallborðsumræðu, tengslamyndunarviðburði og þar fram eftir götum. Heill hellingur af íslensku listafólki hefur stigið á stokk á hátíðinni og kjölfarið fengið ótal önnur tækifæri. Þar má t.a.m. nefna Ásgeir, Vök, Sunnu Margréti, Mammút, Supersport og miklu fleiri.

Sækið um hér

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar