Best Fit Sessions - RAKEL

11 February 2026

📷 Jackson Ducasse

Í miðjum Airwaves önnum bauð RAKEL The Line of Best Fit teyminu heim til sín í síðdegiste og flutti fyrir þau heimilislega og lágstemmda útgáfu af lagi sínu 11:11. Útkoman er þetta fallega myndband sem fangar listakonuna á sínum allra persónulegustu nótum.

Í fyrra kom fyrsta sólóplata RAKELar út á vegum OPIA Community, útgáfufyrirtækis og listasamsteypu í eigu Ólafs Arnalds. og vakti hún gríðarlega athygli á alþjóðavísu. Næst á dagskrá hjá henni er að hita upp fyrir Of Monsters and Men á Evróputúr hljómsveitarinnar sem hefst í lok febrúar en RAKEL er einnig bókuð á faghátíðirnar SXSW, FOCUS Wales, Primavera Pro og Tallin Music Week.

Myndbandið var unnið af TLOBF í samstarfi við Record in Iceland.

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar