
Tilraunapoppdúettinn Amor Vincit Omnia kom nýverið fram á tónlistarhátíðinni Reeperbahn í Hamborg og í tilefni ferðarinnar báðum við þau um að taka við stjórninni á Love Letter lagalistanum okkar.
Hljómsveitin hefur verið á siglingu undanfarin misseri. Hún gaf út plötuna Extended Babe í byrjun árs og var í kjölfarið bókuð á New Colossus í New York og SXSW hátíðina í Texas. Þar kom hljómsveitin meðal annars fram á tónleikum sem Íslandsvinirnir The Line of Best Fit bókuðu, við gríðarlegar undirtektir viðstaddra. Framtíðin er björt hjá Amor Vincit Omnia.
Þema lagalistans er kveðja. Meðlimir hljómsveitarinnar tala um að þau séu að ganga í gegnum tímabil sem einkennist af krossgötum og ljúfsárum kveðjustundum og ber lagavalið vitni um það. Hér eru knúsin hlý og innileg en oft sár. Frábært veganesti í lægðatímabilið sem við stöndum frammi fyrir.
Hlustið á Iceland Music Love Letter hér:

