Íslenska Hip-hop senan kom, sá og sigraði á tónlistarverðlaunum The Reykjavík Grapevine sem haldin voru á Lemmy í gærkvöldi, fimmtudaginn 5. febrúar. Alaska 1867, digital ísland og Birnir hlutu öll verðlaun en hópurinn prýðir einnig forsíðu blaðsins þennan mánuðinn.
Tónlistarverðlaun The Reykjavík Grapevine hafa verið haldin árlega frá árinu 2013 og er þetta því í fjórtánda sinn sem verðlaunin eru veitt. Í ár voru 36 atriði tilnefnd í níu flokkum af dómnefnd sem ritstjórn tímaritsins setti saman.
Í dómnefnd í ár sátu Alexander Le Sage de Fontenay, grafískur hönnuður og tónlistarpenni, Ish Sveinsson Houle og Jóhannes Bjarkason, blaðamenn Reykjavík Grapevine, Kristján Guðjónsson, dagskrárgerðarmaður á Rás 1 og Maria-Carmela Raso, tónlistarkona og viðburðarstjóri.
María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, var meðal þeirra sem veitti verðlaun og notaði hún tækifærið og hrósaði blaðinu fyrir metnaðarfulla menningarmiðlun í áraraðir.
Við tökum undir með Maríu og óskum öllum verðlaunahöfum til hamingju!
📸 Art Bicnick
Listamaður ársins
Alaska 1867 – Sigurvegari
Knackered
Múm
Páll Óskar og Benni Hemm Hemm
Plata ársins
Birnir – Dyrnar – Sigurvegari
RAKEL – a place to be
Spacestation – Reykjavik Syndrome
Múm – History of Silence
Lag ársins
digital ísland – eh plan – Sigurvegari
Alaska 1867 – SMS
Páll Óskar og Benni Hemm Hemm – Eitt af blómunum
Kusk & Óviti – HJÁ ÞÉR
Besta myndræna framsetning ársins
Flesh Machine – Taking My Time (Leikstjórn: Snæfríður Sól Gunnarsdóttir) – Sigurvegari
Birnir, Doddi digital og Ragnhildur Stefánsdóttir – Dyrnar (plötuumslag)
Ólafur Arnalds & Loreen – SAGES (Leikstjórn: Thora Hilmarsdottir)