
Þriðjudaginn 18.ágúst hélt Tónlistarmiðstöð móttöku fyrir styrkhafa seinni úthlutunar Tónlistarsjóðs 2026, þeirri fimmtu frá stofnun sjóðsins árið 2024. Metaðsókn var í sjóðinn í þetta sinn en alls bárust 431 umsókn og var heildarupphæð styrkumsókna 704 milljónir. Árangurshlutfall var því um 11%.
„Þessar tölur sýna okkur fyrst og fremst hversu gríðarleg ásókn er í Tónlistarsjóð og hversu mörg góð og metnaðarfull verkefni sækja um stuðning. Það þýðir því miður líka að alltof margir fá höfnun og mörg verðug verkefni verða útundan,” sagði María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, sem sér um umsýslu sjóðsins fyrir hönd Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.


Við athöfnina flutti þjóðlagadúettinn Funi nokkur lög en meðlimir dúettsins, þau Chris Foster og Bára Grímsdóttir, eru einnig í forsvari fyrir Vöku Þjóðlistahátíð sem hlaut 3. m.kr. styrk frá deild þróunar og innviða. Fleiri hátíðir hlutu styrki frá sömu deild og má þar til að mynda nefna samtímatónlistarhátíðina Myrka músíkdaga, sem fékk styrk upp á sömu upphæð, þungarokkshátíðina Sátuna, hina illskilgreinanlegu State of The Art og Smekkleysu, sem fékk styrk til að halda tveggja daga tónlistaveislu í tilefni af 40 ára afmæli fyrirtækisins.

Hæsta tónlistarstyrkurinn úr deild frumsköpunar og útgáfu hljóðaði upp á 2 m.kr. Og var handhafi hans tónlistarmaðurinn Bjarni Daníel Þorvaldsson. Ellen Kristjánsdóttir og Þórður Magnússon hlutu 1.8 m.kr. hvor.

Óperukompaníið HinÓperan hlaut hæsta flytjendastyrkinn úr deild lifandi flutnings, uppá 2,7 m.kr. Þá hlutu hljómsveitin Moses Hightower 2,2 m.kr. og kammertríóið Meltríó 1,8 m.kr til að fara á tónleikaferðalög um landið.

Útgáfufyruirtækið Bedroom Community hlaut 2 m.kr. úr deild útflutnings en fyrirtækið fagnar 20 ára afmæli á árinu og mun styrkurinn nýtast til að kynna útgáfuna og fagna afmælinu á alþjóðavísu.
