Tónlistarsjóður veitir 11 ferðastyrki í ágúst úthlutun - næsti umsóknarfrestur er 1. október

25 August 2026

Ferðastyrkir eru veittir tónlistarfólk og fagaðilum sem hyggjast sækja sér tækifæri á alþjóðlegum mörkuðum, t.d. með tónleikaferðalögum, þátttöku í sendinefndum, sölusýningum og faghátíðum (e. showcase). Einnig eru veittir styrkir til tónskálda vegna frumflutnings á tónverkum sem og fagaðila vegna starfstengdra ferða, t.d. til að sækja ráðstefnur og tengslamyndunarviðburði.

Styrkirnir eru veittir á tveggja mánaða fresti og rann síðasti umsóknarfrestur út þann 1. ágúst. Í þetta sinn voru veittir 11 styrkir upp á samtals 2.925.000 kr.

Næsti umsóknarfrestur er 1. október 2026.

Verkefni sem hlutu ferðastyrk í ágúst:

  • Vintage Caravan - 300.000 kr.
  • Francesca Stoppani / Worship Bookings - 75.000 kr.
  • Þóra Kristín Gunnarsdóttir - 150.000 kr. 
  • ADHD - 300.000 kr.
  • Nexion - 300.000 kr.
  • Funi - 150.000 kr.
  • Svavar Knútur - 300.000 kr.
  • Elín Hall - 150.000 kr.
  • Axel Flóvent - 225.000 kr.
  • múm - 525.000 kr.
  • Spacestation - 450.000 kr.
Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar