
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Tónlistarsjóð vegna fyrri úthlutunar sjóðsins árið 2027. Umsóknarfrestur er til 30. október, kl. 15:00.
Samkvæmt tónlistarlögum og reglum um Tónlistarsjóð er hlutverk sjóðsins að efla íslenska tónlist, hljóðritagerð og þróunarstarf í íslenskum tónlistariðnaði. Sjóðurinn skal stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun hér á landi og erlendis.
Styrkir úr Tónlistarsjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og að öllu jöfnu þurfa verkefni að hefjast innan 18 mánaða eftir að úthlutun fer fram. Almennt eru ekki veittir styrkir til rekstrar og umsýslu samtaka, fyrirtækja og stofnana, sem hljóta regluleg rekstrarframlög, né til verkefna eða viðburða sem þegar hafa átt sér stað
Umsóknir verða ekki teknar til greina ef lokaskýrslur, eða áfangaskýrslur, fyrir verkefni sem fengu styrk árið 2022 eða síðar hafa ekki borist í umsóknarkerfið. Þetta á við styrkveitingar úr „gamla“ Tónlistarsjóði og Hljóðritasjóði, en ekki Útflutningssjóði.
Tónlistarmiðstöð sinnir úthlutun úr Tónlistarsjóði fyrir hönd Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.
Umsóknum, áfangaskýrslum og lokaskýrslum skal skilað á rafrænu formi.


