Opið Kall: Berlin Month of Contemporary Music 2026

02 March 2026

Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við Initiative Neue Musik Berlin (INM) og alþjóðlega samstarfsaðila, býður þremur íslenskum fagaðilum í tónlist (tónskáldum, flytjendum, listrænum stjórnendum eða forsvarsmönnum tónlistarhópa) einstakt tækifæri til að kynnast kjarna samtímatónlistarsenunannar í Berlín dagana 2.–5. október 2026.

Ferðin verður farin í tengslum við Mánuð samtímatónlistar (Month of Contemporary Music) sem verður haldinn í tíunda sinn dagana 2. til 31. október í Berlín. Í tilefni af tíu ára afmæli samtímatónlistarveislunnar opnar dagskrá mánaðarins með sérstakri hljómsveitahátíð, Ensemble Festival, dagana 2.–4. október.

Áhugasömum er bent á að mæta á kynningu hjá Signýju á verkefninu sem haldin verður í Tónlistarmiðstöð fimmtudaginn 12. mars kl. 17, einnig verður í boði að fylgjast með á streymi. Mikilvægt er að öll áhugasöm skrái sig hér.

Af hverju að sækja um?

Um er að ræða markvissa leið inn á þýska markaðinn fyrir þau sem vilja kynna sér hann. Ferðin samanstendur af tónleikadagskrá, tengslamyndunarviðburðum, vinnustofum og ráðstefnum og er markmið hennar að skapa náin tengsl á milli íslensku samtímatónlistarsenunnar og lykilaðila í Berlín.

Það sem er í boði:

  • Tónleikadagskrá: Þriggja daga dagskrá á The Ensemble Festival í CANK (fyrrum verslunarmiðstöð í Neukölln) þar sem fremstu hópar Berlínar koma fram.
  • Kynningarferðir: Heimsóknir í hljóðver, á tónleikastaði og á vinnustofur sem annars eru lokaðar almenningi.
  • Time to Listen Ráðstefnan: Þátttaka í umræðum um alþjóðlegt samstarf og rekstur sjálfstæðra tónlistarhópa.
  • Persónuleg ráðgjöf: INM og Tónlistarmiðstöð veita ráðgjöf fyrir brottför og aðstoða við að skipuleggja fundi með þeim listrænu stjórnendum og skipuleggjendum sem þátttakendur óska eftir fundum með.
  • Alþjóðlegt tengslanet: Fjögurra daga vinnulota með völdum hópi fagaðila víðs vegar úr Evrópu. Hér myndast raunveruleg tengsl sem geta nýst í framtíðarsamstarfi og tónleikaferðum.

Stuðningur

Tónlistarmiðstöð veitir völdum þátttakendum 1.000 evru ferðastyrk sem á að standa straum af flugi, gistingu og miðakaupum. Þátttakendur þurfa að leggja út fyrir ferðinni en fá endurgreitt gegn framvísun kvittana. 

Fyrir hverja er þetta?

Dagskráin er ætluð tónskáldum, flytjendum, skipuleggjendum og listrænum stjórnendum í samtímatónlistargeiranum. Ferðin nýtist best þeim sem eru með skýrar hugmyndir eða verkefni í huga sem krefjast alþjóðlegs samstarfs - hvort sem um er að ræða frumflutning verks, samstarf tónlistarhópa eða tengslamyndun við evrópska kollega.

„Þetta var gríðarlega áhrifarík ferð og yfirfull af veganesti. Eftir ferðina hef ég haldið sambandi við nokkra tónlistarhópa og einn listrænan stjórnanda hátíðar.“
-Mads Emil Dreyer, tónskáld og fyrrum þátttakandi.

Valferli Dómnefnd skipuð fulltrúum samstarfsaðila og INM / Field Notes Berlin velur úr umsóknum.Frekari upplýsingar veita Lisa Benjes (lisa.benjes@inm-berlin.de) eða Signýju Leifsdóttur (signy@icelandmusic.is).



Sækið um hér


Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2026
Ath. Aðeins einn aðili frá hverri stofnun eða tónlistarhópi getur hlotið styrk.

Samstarfsaðilar: Art Music Denmark, Centre National de la Musique, Fonds Podiumkunsten Netherlands, Tónlistarmiðstöð, Kultur:lx, Austrian Music Export, Music Finland, Music Norway, Pro Helvetia.

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar