Opið kall - Nordic Folk Alliance 2026

05 February 2026

Opið er fyrir umsóknir um að koma fram á Nordic Folk Alliance í Malmö í Svíþjóð, 9.-11. april 2026. Umsóknarfrestur er til og með 11. febrúar. Nordic Folk Alliance 2026 (NFA) er faghátíð (e.showcase festival) og tónlistarráðstefna sem fer fram í Malmö í Svíþjóð dagana 9.-11. apríl 2026. Hátíðin leiðir saman listafólk, umboðsfólk, tónleikahaldara, útflutningsskrifstofur og annað fagfólk úr norræna tónlistariðnaðinum.

Tónleikadagskrá hátíðarinnar fer fram í Palladium Malmö, sem er rótgróinn tónleikastaður í borginni. Viðburðurinn er skipulagður af RFoD í nánu samstarfi við norræna samstarfsaðila og tónlistarskrifstofur, og fer hátíðin fram samhliða Malmö Folk Festival.

Meðal fyrri þátttakenda frá Íslandi má nefna Blood Harmony, Svavar Knút, Umbru, Lón, Ásta og Ása, Árstíðir og Brek

Hátíðin útvegar listafólki hótel á meðan á hátíð stendur og 2500 SEK í þóknun. Einnig er mælt með því að það listafólk sem verði fyrir valinu sæki um ferðastyrk frá Tónlistarsjóði en næsti umsóknarfrestur er 31. Mars. 

Gert er ráð fyrir að tónlistarfólkið sé einnig viðstatt ráðstefnuna og nýti sér hana sem vettvang til að auka tengslanet sitt og fræðast um geirann. Ráðstefnan stendur yfir tvo daga og á henni er fjallað um ýmis athyglisverð málefni sem snerta þjóðlagageirann á Norðurlöndum.

Sækið um hér >>

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar