.jpg)
Nótnaveita Tónlistarmiðstöðvar, stærsta nótnasafn landsins, er nú í fyrsta sinn aðgengileg á íslensku á síðunni notnaveita.is. Nótnaveitan, sem áður var í umsjón Íslenskrar tónverkamiðstöðvar, opnaði á ný í fyrra undir stjórn Tónlistarmiðstöðvar, en þá á ensku. Ný uppfærsla síðunnar veitir því almenningi nýja gátt að tónlistarsögu þjóðarinnar.
Nótnaveitan er í senn dýrmætur menningararfur og lifandi heimild sem fer sífellt vaxandi. Veitan teygir sig frá elstu varðveittu tónsmíðum þjóðarinnar til nýjustu verka samtímatónskálda og geymir rúmlega 12.000 verk eftir um 400 íslensk tónskáld. Auk þess að skoða, kaupa eða leigja verkin býður vefsíðan upp á æviágrip fyrir flest tónskáld, sem gerir síðuna að einni yfirgripsmestu heimild um íslensk tónskáld á netinu.
Vefurinn þjónar jafnt fagfólki sem áhugafólki um tónlist og er tilgangur hans að auðvelda leit, rannsóknir og flutning á íslenskri tónlist, hvort sem er innanlands eða á alþjóðavettvangi.

Nótnaveita Tónlistarmiðstöðvar býður einnig upp á ritstýrð söfn af verkum, bæði eftir einstök tónskáld sem og eftir ákveðnum þemum.
Meðal ritstýrðra safna er serían Tónskáld mánaðarins, en eins og nafnið gefur til kynna er þar sjónum beint að einu tónskáldi á mánuði og boðið upp á 20% afslátt af öllum nótum viðkomandi höfundar þann mánuðinn.
Fyrsta tónskáld mánaðarins er Sigurður Sævarsson, en Nótnaveitan geymir nú 29 verk eftir hann. Sigurður er skólastjóri Nýja Tónlistarskólans og meðal fremstu tónskálda landsins. Verk hans hafa vakið verðskuldaða athygli jafnt hér heima sem erlendis og hlaut hann til að mynda tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir óratoríuna Hallgrímspassíu árið 2012. Árið 2022 náði svo platan Ice Land: The Eternal Music, sem var gefin út af Harmonia Mundi og hafði að geyma verk Sigurðs auk annarra íslenskra tónskálda, öðru sæti breska viðsældalistans.
Skoðaðu safnið og Tónskáld mánaðarins á Notnaveita.is