Myrkir músíkdagar 2026: Um 40 tónverk frumflutt á fjórum dögum

09 February 2026

Samtímatónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar fór fram dagana 29. janúar til 1. febrúar sl. Hátíðin var stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands og er ein elsta tónlistarhátíð landsins.

Hátíðin fór að mestu fram í Hörpu, en einnig voru viðburðir í Hallgrímskirkju og Borgarbókasafninu. Um 200 fagaðilar í tónlist komu að hátíðinni og samstóð dagskráin af alls 80 tónverkum eftir 60 höfunda. Þar af voru um 40 verk frumflutt.

Meðal hápunkta hátíðarinnar voru frumflutningur Sinfóníuhljómsveitar Íslands á nýjum verkum eftir Báru Gísladóttur og Maríu Huld Markan, opnunartónleikar kammerkórsins Huldar og flutningur þýska brasskvartettsins APPARAT á verki Bergrúnar Snæbjörnsdóttur. Þá flutti Caput Ensemble nýjan harmonikkukonsert eftir Veronique Vöku og Cantoque Ensemble heiðruðu Hildigunni Rúnarsdóttur með tónleikum í Hallgrímskirkju. Auk tónleika bauð hátíðin upp á hljóðgöng, innsetningar, hljóðbað, tölvuleiki og alls kyns tilraunir.

„Myrkrið er dýrmætt“ 

Myrkir músíkdagar, í samstarfi við Tónlistarmiðstöð og Íslandsstofu, stóðu fyrir gerð stuttmyndar þar sem brugðið er upp svipmyndum af nokkrum listamönnum hátíðarinnar í ár. Myndinni var leikstýrt af Anni Ólafsdóttur og framleidd af Lokaútgáfunni, en þar er fjallað um innblástur listamannanna og skammdegið.

Undirbúningur fyrir Myrkra músíkdaga 2027 er þegar hafinn. Fljótlega verður auglýst eftir tillögum og hugmyndum fyrir næstu hátíð í gegnum opið kall.

Myndir frá Myrkum músíkdögum

Kammerkórinn Huldur á opnunartónleikum hátíðarinnar

Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg undir stjórn Sir James MacMillan
‍Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir flytur verkið Fjögur lög með millispilum eftir Finn Karlsson

Flautukór MÍT

Harladur Jónsson flytur verk sitt Hlað

Cantoque Ensemble hélt tónleika til heiðurs HIldigunnar Rúnarsdóttur

Magnús Jóhann og Bára Gísladóttir

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar