Haustskál Tónlistarmiðstöðvar - Myndir

16 September 2026

Tónlistarmiðstöð bauð vinum og velunnurum í Haustskál á 12 Tónum þann 2. september síðastliðinn. Þar var skálað fyrir komandi tónlistarhausti og spiluðu DJ Hermigervill og Spacestation nokkur lög undir. 

María Rut, framkvæmdastjóri miðstöðvarinnar, bauð gesti velkomna og stiklaði á stóru yfir helstu verkefni miðstöðvarinnar á næstu mánuðum. Haustverkefnin eru eins ólík og þau eru mörg, en snúa öll að því að styrkja innviði íslenska tónlistargeirans og efla útflutningsstarfið okkar.  

Heima

Heima fyrir ber helst að nefna Bransaveisluna árlegu sem haldin er í byrjun nóvember dagana fyrir Iceland Airwaves hátíðina í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Íslandsstofu. Dagskrá veislunnar í ár verður veglegri en nokkru sinni fyrr og verður hún kynnt á næstu vikum. Bransaveislan leiðir svo inn í IA ráðstefnuna en Tónlistarmiðstöð sér einnig um dagskrá annars af tveimur ráðstefnudögum hennar. 

Tónlistarsjóður opnaði fyrir umsóknir í gær, þann 15. september, og er umsóknarfrestur þann 30. okt klukkan 15.00. Tónlistarmiðstöð annast, sem áður, umsýslu sjóðsins fyrir hönd Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. 

Af öðrum viðburðum haustsins má nefna kynningu á mexíkóska tónlistarmarkaðinum, fræðslu um grannréttindi í samstarfi við SFH og vinnustofu með Christiana Sudano (Do Less Management) þar sem tónlistarfólk getur undirbúið sig fyrir tónlistarárið 2027. 

Erlendis

Á alþjóðavettvangi er líka nóg um að vera. Um síðustu helgi fór menningarhátíðin Taste of Iceland fram í London. Þar var Leifur Björnsson, sérfræðingur í útflutningi,  staddur með Inspector Spacetime og virgin orchestra sem spiluðu fyrir troðfullum sal á tónleikastaðnum Colours Hoxton. Taste of Iceland heldur svo áfram og verður hátíðin haldin í New York og Vancouver á haustmánuðum. Þar höldum við áfram að kynna íslenska tónlist og tónlistarfólk fyrir fólki og tækifærum í mörkuðunum.  

Sömu helgi var María Rut á by:larm í Osló þar sem norræna samstarfsverkefninu Current var ýtt úr vör. Verkefnið miðar að því að tengja betur saman norrænar faghátíðir og listafólk og eru Árný og SCAM íslensku þátttakendurnir í verkefninu og komu þær fram á hátíðinni. Á by:larm veittu NOMEX samtökin einnig Top 20 under 30 verðlaunin, en 4 íslenskir fagaðilar fengu viðurkenninguna í ár. Það eru þau Aurora Di Rienzo, Francesca Stoppani, Atli Freyr Hjaltason og Breki Adiel Stefánsson. 

Þessa vikuna er Leifur staddur á Reeperbahn hátíðinni í Hamborg til að fylgja eftir Amor Vincit Omnia, Elín Hall og Spacestation. Í byrjun október fer Signý Leifsdóttir svo til Berlínar með tónskáldunum Áka Ásgeirssyni, Bergrúnu Snæbjörnsdóttur og Þórgunni Önnu Örnólfsdóttur til að taka þátt í Month of Contemporary Music þar í borg. 

Inn á við

Tónlistarmiðstöð horfir einnig inn á við þessa dagana og í haust verður farið í allsherjar stefnumótun fyrir útflutningsstarfið okkar. Þar leggjum við öll verkefnin á borðið, skoðum hvað virkar, hvað virkar síður og hvernig við getum best stutt við útflutning íslenskrar tónlistar næstu árin. Sú vinna verður unnin í nánu samtali við tónlistargeirann og við hlökkum mikið til að segja ykkur meira frá henni.

Að lokum erum við, ásamt Rannsóknasetri skapandi greina, að ljúka við stóra rannsókn á tónlistarneyslu Íslendinga - hvernig við hlustum, á hvað við hlustum, hvernig við uppgötvum tónlist og ekki síst hvaða hlutverki íslensk tónlist gegnir í lífi okkar. Niðurstöðurnar eru komnar í hús og hlökkum við til að segja ykkur betur frá þeim fljótlega. Í kjölfarið förum við í átak til að hvetja okkur öll til að hlusta meira á íslenska tónlist.

Það er sem sagt nóg að gera hjá okkur í Austurstrætinu og ófá spennandi verkefni framundan í haust. Við mælum auðvitað með því að áhugasöm skrái sig á fréttabréf miðstöðvarinnar og fylgist vel með á samfélagsmiðlum okkar. 

Myndir

Ljósmyndari: Sunna Ben

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar