Bjöggi í Spacestation tekur við Love Letter lagalistanum

02 March 2026

Björgúlfur Jes Einarsson, eða Bjöggi í Spacestation, tekur við Love Letter lagalistanum að þessu sinni.

‍Spacestation hafa verið á stöðugu flakki upp og niður Evrópu, frá því að hljómsveitin gaf út sína fyrstu plötu, Reykjavik Syndrome, í byrjun síðasta árs. Nú er hljómsveitin á leiðinni til Bandaríkjanna í fyrsta sinn þar sem hún mun koma fram á SXSW hátíðinni í Austin, Texas og á Iceland Airwaves Off-Venue tónleikum, á menningarhátíðinni Taste of Iceland, í Seattle.

Það er einmitt þetta flakk sem er kveikjan af lagavali Bjögga sem hann tileinkar heimþránni. Skafrenningsandinn er við völdin en Kúlusúkkið og E. Finnsson pítusósan aldrei langt undan. 

Njótið!

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar