ADHD tekur yfir Iceland Music Jazz og heldur á átta djasshátíðir í Kanada

16 June 2026

Hljómsveitin ADHD heldur til Kanada þann 17. júní, þar sem hún mun koma fram á átta djasshátíðum víðsvegar um landið á næstu vikum. Tónleikaferðalagið markar ákveðinn hápunkt á markvissri vinnu Tónlistarmiðstöðvar við að kortleggja kanadíska hátíðageirann og auka tækifæri íslensks tónlistarfólks í landinu.

Í tilefni af tónleikaferðalaginu buðum við ADHD að taka við stjórninni á Iceland Music Jazz lagalistanum okkar. Hljómsveitin, sem samanstendur af landsþekktum ólíkindatólum og er þekktust fyrir að huna hefðbundnar leikreglur, skilaði okkur lista sem endurspeglar þennan grallaraskap fullkomlega. Þetta er ófyrirsjáanlegt en gífurlega skemmtilegt ferðalag um hugarheima meðlimanna og kjarnar margt það skemmtilegasta sem er að gerast í íslensku djasssenunni í dag.

Samstarf Tónlistarmiðstöðvar og Jazzhátíðasambands Kanada

Sérstaða kanadísku djasshátíðanna, sem eru ansi margar talsins, felst í því að þær fara að mestu fram á sama eins mánaða tímabili yfir sumarið. Vegna landfræðilegrar stærðar landsins keppast hátíðirnar ekki sín á milli, heldur vinna þær náið saman og deila gjarnan bókunum á listafólki. Hátíðirnar hittast á árlegum aðalfundum þar sem farið er yfir bókanir næsta sumars og þar kynnir Tónlistarmiðstöð lista yfir helstu íslensku djassverkefnin hverju sinni. Ef hátíðirnar bóka íslenskt listafólk í gegnum þetta samstarf aðstoðar Tónlistarmiðstöð svo við ferðalögin.

Starfið skilaði strax árangri síðasta sumar, þegar tónlistarkonan Anna Gréta Sigurðardóttir og hljómsveitin Hist og spiluðu á djasshátíðunum í Ottawa og Edmonton, auk eigin tónleika í Toronto. Í kjölfarið var formanni Kanadísku jazzhátíðasamtakanna boðið á Jazzhátíð Reykjavíkur til að kynnast íslensku senunni af eigin raun.

Sigtryggur Baldursson, sérfræðingur í útflutningi hjá Tónlistarmiðstöð, segir tónleikaferð ADHD til marks um að kortlagning djasshátíðanna og tengslamyndunarvinna síðastliðinna ára sé að skila árangri, en leggur jafnframt áherslu á að gróska senunnar og aðkoma íslenskra fagaðila skipti sköpum:

„Kanada er gífurlega öflugur markaður og er hann að opnast mikið, ekki síst vegna aukins áhuga á evrópsku samstarfi. Svona verkefni eru þó ekki unnin í einrúmi og því höfum við líka verið að leggja áherslu á þróun innviðanna og faglega hlutans hérlendis. Sú vinna er líka að skila meiri árangri, en tónlistarfólk er almennt orðið miklu betra í að finna sér sterka samstarfsaðila, eins og í tilfelli ADHD sem vinna með umboðsmanninum Sveini Snorra.“

ADHD á túr um Kanada: 

18. júní - Winnipeg, Winnipeg Jazzfestival

19. júní - Gimli, Gimli Festival

20. júní - Toronto, Wavelength Festival

21. júní - Ottawa, Ottawa Jazzfestival

23. júní -Toronto, Toronto Jazzfestival

25. júní - Calgary, Calgary Jazzfestival

26. júní - Edmonton, Edmonton Jazzfestival

27. júní - Vancouver, Vancouver Jazzfestival

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar