Spotify Masterclass: Connecting with Fans & Growing Your Audience

No items found.

Spotify Masterclass: Connecting with Fans & Growing Your Audience

Hvar: Tónlistarmiðstöð, Austurstræti 5, 101 Reykjavík
Hvenær: Þriðjudaginn 3. nóvember kl. 15:30–17:00
Viðburðurinn fer fram á ensku

Emma Vikström, yfirmaður norrænnar ritstjórnar Spotify, heldur meistaranámskeið um hvernig tónlistarfólk og teymin þeirra geta nýtt Spotify sem best til að ná til nýrra hlustenda, dýpka tengsl við aðdáendur og byggja upp ferilinn.

Farið verður yfir Spotify for Artists, nýjustu eiginleika forritsins og þau verkfæri sem listafólk getur nýtt sér þar. Við munum skoða hvernig hægt sé að tengjast og skilja hlustendahópinn sinn betur og einnig verður farið yfir hvernig lagalistar Spotify virka, hvaða tegundir lagalista eru til og hvernig best er að kynna nýja tónlist fyrir ritstjórum Spotify um allan heim.

Skráning fer fram hér >>>

‍

Fyrirlesari

Emma Vikström – yfirmaður norrænnar ritstjórnar, Spotify

Emma Vikström er yfirmaður ritstjórnar Spotify á Norðurlöndunum. Þar leiðir hún teymi tónlistarritstjóra sem móta tónlistarupplifun sem á erindi við hvert svæði og menningu þess. Hún leggur áherslu á nýja tónlist og upprennandi listafólk og aðstoðar norrænu tónlistarfólki að ná til hlustenda um allan heim. Hún hefur starfað hjá Spotify í yfir sjö ár, bæði á Norðurlöndunum og á alþjóðavísu.

‍

Dagsetningar
Dagsetning
3 November 2026
 –
Staðsetning
Tónlsitarmiðstöð, Austurstræti 5, 101 Reykjavík
Vefsíða
Aðrir viðburðir
Allir viðburðir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar