
Tónlistarmiðstöð býður vinum og velunnurum í Haustskál á 12 Tónum þann 2. september kl. 17.00
Þar munum við kynna helstu verkefni haustsins en fyrst og fremst er ætlunin að fagna komandi tónlistarhausti í góðum félagsskap og með góðri tónlist.
Spacestation ætla að spila nokkur akústísk lög og DJ Hermigervill sér svo um að halda fjörinu gangandi.
Boðið verður upp á léttar veitingar
Hlökkum til að sjá ykkur!