English

Making Tracks: Opið fyrir umsóknir

28
.  
May
 
2024

Making Tracks: Opið fyrir umsóknir

Making Tracks er alþjóðlegt tónlistarverkefni í Bretlandi sem býður átta einstaklingum í tveggja vikna listamannadvöl og tveggja vikna tónleikaferðalag um Bretland. Verkefnið var stofnað til þess að auka aðgang að menningarlega fjölbreyttri tónlist fyrir fólk sem býr í minni borgum Bretlands.

Verkefnið er haldið 9. september til 5. október 2024

Umsóknarfrestur er til 31. maí

SÆKJA UM

LISTAMANNADVÖL:

Í listamannadvölinni fær tónlistarfólk tækifæri til að stofna til nýrra samstarfsverkefna og fá starfsráðgjöf frá sérfræðingum í tónlistariðnaðinum.

TÓNLEIKAFERÐALAG:

Eftir listamannadvölina fara þeir átta útvöldu í tónleikaferðalag um Bretland. Tónleikarnir eru 10 og staðirnir sem farið verður á eru bæði litlir og meðalstórir.

HVERJIR GETA SÓTT UM?

  • Tónlistarfólk á aldrinum 19-35 ára
  • Þau sem skapa tónlist tengda eigin menningu
  • Þau sem hafa áhuga á að vinna með öðru fólki og stofna til samstarfsverkefna
  • Tilraunatónlistarfólk sem vinnur með hljóðmyndir (e. soundscape) umhverfisupptökur (e. field recordings) og hljóðlist (e. sound art)
  • Umhverfisverndarsinnar

FREKARI UPPLÝSINGAR

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar