Fræðslukönnun Tónlistarmiðstöðvar

05 August 2026

Tónlistarmiðstöð stendur reglulega fyrir fræðsluviðburðum og námskeiðum, nýleg dæmi eru m.a. fræðsla um Tónlistarsjóð, tekjur af tónlist, ertu reddí í 2026 með Cristiano Sudano, útflutningsnámskeið fyrir jazztónlistarfólk, Tónaflakk á Akranesi og umboðsmennska 101 o.fl. Allir fræðsluviðburðir eru í boði í steymi.

Áhersla er lögð á að styðja tónlistarfólk og tónlistarfagfólk í öllu því sem tengist starfsemi þess, hvort sem um er að ræða fjármál, rekstur eða alþjóðleg tengsl. Við viljum gjarnan koma sem best til móts við þessa hópa og leitum því til þín eftir hugmyndum og værum þakklát ef þú vildir svara könnuninni hér fyrir neðan

Við hvetjum öll til að skrá sig á fréttabréf Tónlistarmiðstöðvar og fylgjast með miðlum miðstöðvarinnar til að vera meðvituð um komandi viðburði og fræðslu.

Svör eru ekki persónugreinanleg og bundin trúnaði. Spurningar um kyn og aldur eru valkvæðar og eru einungis settar fram til að geta komið sem best til móts við öll.

Svara könnun

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar